Fara í meginmál
atwork
Allar fréttir

Skapandi umhverfi fyrir fjölbreytt verkefni

Janúarmánuður hefur verið einstaklega skapandi hjá atwork á Köllunarklettsvegi, þar sem leikkonurnar Edda Björgvinsdóttir og Elfa Ósk Gísladóttir hafa nýtt aðstöðuna til æfinga á leikritinu Tvær systur og Brúðkaup. Leikstjóri verksins er María Sigurðardóttir.

Edda Björgvinsdóttir og Elfa Ósk Gísladóttir velja Atwork undir æfingar

Janúarmánuður hefur verið einstaklega skapandi hjá atwork á Köllunarklettsvegi, þar sem leikkonurnar Edda Björgvinsdóttir og Elfa Ósk Gísladóttir hafa nýtt aðstöðuna til æfinga á leikritinu Tvær systur og Brúðkaup. Leikstjóri verksins er María Sigurðardóttir.

Verkefnið er gott dæmi um það hvernig rými atwork nýtast ekki aðeins hefðbundnum fyrirtækjum, heldur einnig skapandi fagfólki sem þarf fallegt, rólegt og hvetjandi umhverfi til vinnu. Aðstaðan á Köllunarklettsvegi hefur veitt teyminu svigrúm til einbeitingar, samvinnu og sköpunar í aðdraganda sýningarinnar.

Við hlökkum til að sjá Tvær systur og Brúðkaup á sviði í haust, þegar verkið verður frumsýnt í Kaldalóni í Hörpu.

Hjá atwork er markmiðið alltaf það sama: að bjóða upp á vinnurými þar sem ólík verkefni, ólíkt fólk og ólíkar hugmyndir fá að blómstra.