Fara í meginmál
atwork

Um okkur

Að hefjast handa með Atwork er einfalt

Okkar markmið er að vera þar sem þú vilt vinna. Þú vinnur hvar sem reksturinn krefst þess — við bjóðum upp á skrifstofur, sameiginleg vinnusvæði og fundarherbergi út um allt land og einnig erlendis.

Hvort sem þú sinnir rekstrinum upp á eigin spýtur, ert að koma sprotafyrirtæki á laggirnar eða stýrir farsælasta fyrirtæki heims — þjónustunetið okkar gerir þér kleift að starfa nálægt viðskiptavinum, samstarfsfólki eða fjölskyldu.

  1. Bókaðu heimsókn eða símtal

    Við tekur samtal um þínar þarfir — engin skuldbinding.

  2. Við finnum réttu lausnina

    Sérsniðin lausn fyrir þinn rekstur, frá stöku skrifborði upp í heila hæð.

  3. Þú byrjar að vinna

    Flyttu inn og haltu áfram með reksturinn — við sjáum um allt hitt.

Notaleg setustofa með hægindastólum, bókahillum og hlýrri lýsingu

Meðal viðskiptavina okkar

  • Google
  • FedEx
  • Starbucks
  • Arion banki
  • Skatturinn
  • Seðlabanki Íslands
  • GoDaddy
  • Gate 1 Travel
  • Terra
  • Motus
  • UNIO
  • Athygli ráðstefnur
  • Fjártækniklasinn
  • Ferjuleiðir
  • Vivos lögmannsstofa
  • Joe & the Juice

Frá 2014 höfum við aðstoðað fyrirtæki og einstaklinga við að finna og koma á fót vinnusvæði sem hentar þeim best.

Við erum staðsett víðs vegar um landið sem gerir viðskiptavinum okkar kleift að vinna hvar sem er og hvenær sem er. Þeir viðskiptavinir okkar, sem eru á ferðalagi um heiminn, geta auk þess nýtt sér aðstöðu hjá samstarfaðilum erlendis.

Viðskiptavinir geta valið um að vinna á ólíkum starfsstöðum um allt land, og nýtt sér aðstöðu hjá samstarfsaðilum erlendis.

Viðskiptavinir okkar hafa aðgang að bjartri og vel skipulagðri starfsaðstöðu í lifandi umhverfi. Við bjóðum upp á val og sveigjanleika sem sniðið er að þörfum hvers og eins. Öll aðstaða er tilbúin til notkunar með þeim búnaði sem þarf, hvort sem um er að ræða skrifstofur, samvinnurými, setustofur eða fundarherbergi. Atwork teymið býr yfir góðri reynslu og er alltaf til taks og tilbúið að leysa þau mál sem koma upp. Við gerum okkar besta til að leysa málin hratt svo að öll geti einbeitt sér að því sem þau gera best.

Þjónusta okkar einkennist af sveigjanleika og geta viðskiptavinir auðveldlega minnkað við sig, eða stækkað, allt eftir þörfum hverju sinni. Viðskiptavinum býðst að nota það vinnusvæði sem hentar — hvar sem það kann að vera. Með því að bjóða upp á ólíkar staðsetningar er hægt að velja að vinna nær heimilinu, nær viðskiptavininum eða í nálægð við þau verkefni sem unnið er að hverju sinni.

Viðskiptavinir okkar velja sér ekki bara vinnusvæði heldur samstarfsaðila, sem tryggir faglegt og áreiðanlegt starfsumhverfi á hverjum degi.